Úrlausnir.is


Merkimiði - Hrd. 648/2009 dags. 16. september 2010 (Starfslokasamningur framkvæmdastjóra FÍS)

Andrés vann sem framkvæmdarstjóri Félags Íslenskra Stórkaupmanna (FÍS) en gerði svo starfslokasamning. Í þeim samningi stóð að hann ynni ekki hjá þeim út uppsagnarfrestinn jafnvel þótt hann ynni annars staðar. Síðan var Andrés ráðinn hjá samkeppnisaðila FÍS. Félagið var ósátt og neitaði um frekari launagreiðslur. Andrés höfðaði svo málið til að innheimta ógreiddu launin.

Fyrir dómi bar FÍS fyrir brostnar forsendur en ekki var fallist á þá málsvörn. Hæstiréttur taldi að ákvæðið hafi verið skýrt og ef félagið teldi sig hafa ætlað að banna honum að vinna í keppinauti, þá hefði það hæglega getað sett slíkt ákvæði inn í samninginn.

Úrlausnin á vef Hæstaréttar - PDF-eintak af úrlausninni

RSS-streymi merkimiðans

Þessa stundina virðist ekkert vera tengt við þennan merkimiða.